13.01.2007 22:41:25 / issi
gleðilegt ár!!!!! koppurinn er orðinn kokkur kroppur næstum 90
kíló hár lítið er að fara blogga einsog maður fylgist með spennandi
skrifum næstu daga
kveðja frá kroppakokk í koppakoti nýtt og betra húsnæði og fullt
af börnum og lágfótu
»
12.04.2006 23:38:38 / issi
takið þátt í skoðanakönnuninni hér til hliðar ykkar atkvæði telur
»
18.02.2006 23:15:40 / issi
jæja komið þið bless og sæl !!!!!
hvað er að frétta? ef þið hafið ekkert að segja lesið þið þá
bara
ég er nýkominn af bikarúrslitaleik hjá karla og kvennaflokki í
körfubolta og er hamingjusamur. Jú því að karlar lönduðu titli og
þvílík hamingja ofan á allt sem er í gangi hjá mér í einkalífinu.
Sem er bara yndislegt!! en þessi leikur í dag fékk mig til að hugsa
um síðasta leik sem skipti einhverju máli´og þá var mér efst í huga
þegar kvennakarfan vann íslandsmeistaratitil og það var gaman.
Kristján Ásgeirs átti stórleik hann var fyrstur að hlaupa á gólfið
og hoppa með Sólný Páls útum allt í beinni. Eitt árið var ég að
hoppa með negra útum allt þegar við hömpuðum titli í karlaflokki.
Halli var einnig að hoppa hæð sína (sem er ekki mikil) þegar Vala
Flosa fór yfir meterinn.
Hvað skal segja innst inni erum við stolt af okkur hvað sem
gengur á og gerum ýmis asnaprik, en STOLT...................
»
08.02.2006 15:33:26 / issi
jæja hvað er svo að frétta? jú ég er fluttur úr seljahverfi og
var að fara á götuna en þá kom sirrý og bauðst til asð leyfa mér að
fá herbergi hjá sér sem ég þáði með þökkum og svo var haldin
húsreglufundur og settar reglur sem eru svo hljóðandi.
annars hef ég ekkert sofið þarna í þessa daga vegna anna í
Grindavík........
Húsreglur vesturberg 78 íbúð
7-e
-
ekki má sofa hjá nema
að hinn aðilinn samþykki viðkomandi hjásvæfu
-
bannað að stela
shampói,geli,hárspennum og naflalokkum með steini
-
bannað að pissa í
baðið
-
bannað að pissa fram
af svölunum
-
bannað að kúka með
opna hurð
-
það verður að minnsta
kosti að halda 4-5 innflutningspartý
-
bannað að skilja
eftir klámspólu í videótækinu
-
bannað að skilja
eftir óhrein föt t.d. óhreinar naríur á gólfinu
-
það verður að koma
með eitthvað óvænt (fyndið) tvisvar í viku
ef einhver af
þessum reglum er brotin verður refsing ákveðin af hinum
aðilanum og skal henni framfylgt að fullu
»
17.01.2006 20:19:20 / issi
Þetta er nú meiri óveðurtíðin. Þó
það sé vetur er maður samt ekki sáttur hvernig má það vera?. Það
hefur ekkert snjóað og þess vegna er ég ekki á vetradekkjum og
það hefur bara gengið vel hingað til. En svo um helgina kom
norðan áhlaup og ég komst ekki einu sinni að bílnum það var allt
á kafi hér uppi í fjöllum. En þegar ég átti að mæta á laugardag
í vinnu ákvað ég að nota strætó. Ég var búinn að kanna það á
netinu hvað strætó ég ætti að taka og klæddi mig vel með húfu og
allt því ég vildi ekki að einhver færi að hlægja af mér fyrir
það eitt að nota strætó. Þú lesandi góður ert eflaust að velta
fyrir þér hugsun þessari hjá mér. Hún er einföld,
Haukur sem er minn
besti vinur og annar sem er mér einnig innan handar hann Kristján
gerðu það að iðju sinni að taka strætó og gera grín að þeim sem
komu þar inn. Ég var einfaldlega undir það búinn að hitta þá og
verða jafnvel fyrir aðkasti að þeirra hálfu en svo var ekki. Heldur
átti ég mjög erfitt sjálfur að gera ekki grín af þessu blessaða
fólki sem kom þarna inn 75% voru nýbúar og hitt voru svona
ógæfufólk einsog ég.
»
11.01.2006 15:29:42 / issi
Ég get ekki verið sáttur í sambandi við D V. Þetta sorprit er
heldur betur búið að gera í buxurnar og vil ég hér með hvetja alla
sem eru að kaupa þetta blað að hætta því samstundis.Í gegnum tíðina
hefur mér fundist allt í lagi þegar þeir hafa verið að birta
dóma og dæmda menn til að láta aðra vita um hvern er verið að tala
um, það er að segja kynferðisafbrotamenn. En þarna eru þeir farnir
að gegna hlutverki dómara og böðuls. Þessi blessaði maður hefur
ekki verið dæmdur hann hefur verið grunaður og ásakaður um
kynferðisafbrot, það er verið að rannsaka allar hliðar á þessu og
það sem mér skilst fer hans ferill langt aftur í tímann. Og hvað
gerir D V þeir birta nafn hans og mynd. Þetta er fyrir neðan
allar hellur hvernig þeir eru alltaf að ráðast á einkalíf fólks og
snúa öllu upp í æsifrétta mennsku til þess eins að selja blaðið.
HÆTTUM AÐ KAUPA ÞETTA BLAÐ !!!!!!
P.S. Jónas kristjánsson og Mikael Torfason ritstjórar og einnig er
hægt að bæta við Óskari Hrafni fréttastjóra þið hafið trekk í trekk
verið að valta yfir heilu fjölskyldurnar í leit að sannleika sem
þið svo hagræðið eftir hagsmunum blaðsins og eyðilagt þær. Núna
eruð þið búnir að toppa allt þið hafið morð á samviskunni og ekkert
annað.
hann er saklaus uns sekt er sönnuð. Vonandi sofið þið vel
»
03.01.2006 20:06:21 / issi
Þetta blessaða ár 2005 var viðburðarríkt í alla staði fyrir
mig. Ég gekk í gegnum erfiðan skilnað, og mikla sálarkreppu í
kjölfarið. Ég er farinn að umgangast Aron Inga miklu meira en ég
hef gert og er það sem stendur uppúr hjá mér þetta árið. Ég fór
í bakinu í byrjun júní og gat því ekkert spilað golf í allt
sumar. Ég settist á skólabekk og kláraði það með stæl eða einsog
ég vissi að þörf væri á. Ég er flutti frá koppakoti og fékk
eftir langa mæðu, húsnæði sem ég er sáttur að vera í, ég
er ekki viss um að ég flytji nokkurn tímann aftur til
Grindavíkur. Ég sé ekki eftir einu einasta atriði sem ég gerði á
síðasta ári nema helst að hafa vanrækt syni mína. Ég ætla að
hefja þetta ár af krafti en ekki neinu hálfkáki ég er orðinn
ásfanginn eftir að ég sá þáttinn með Eivör Páls og ég er fallinn
í ástargryfju Freyju. Þessi manneskja er meira en mikið þó allt
sé til staðar svei mér þá
»
30.12.2005 00:15:58 / issi
Heil og sæl. Jólin næstum liðin og
voru bara ágæt, mikið borðað, hlegið og sofið. Annars ætla ég
ekki að tala um hátíðina sem slíka hér, heldur góðan vin minn
eða öllu heldur kunningja eða bróðir vinar eða óvin. Svona gæti
ég lengi talið upp allskonar atvik sem hafa komið upp hjá okkur
og ég hef þurft að hjálpa þessum vesaling. Hann hefur t.d. ekki
þakkað mér fyrir þegar ég hef þurft að hlusta á vælið í honum
þegar hann var að segja frá einhverri hjólreiðarferð þegar hann
skeit á sig ....... ég vissi ekki eini sinni hvað hann var að
væla um !
Ekki hefur hann skitið í annarra
kvenna rúm! En hann Gummi einsog hann er kallaður er nú
dugnaðarforkur því þegar hann var að vinna í sundlaug Grindavíkur
var hann oft með sólgleraugu til að fá ekki í augun þegar hann
fylgdist með sundgestum. En þegar hann var líka með sólgleraugun á
skýjuðum rigningar
degi fóru sellurnar mínar að efast um þennan b-landsliðsmann. Hann
var yfirleitt sofandi!!!!!!!! Já gott fólk !!! hann var svo
þreyttur hann spilar nefnilega monipoly allar nætur einn!. Svo er
mjög skemmtilegt að fara útá lífið með honum. Ég einsog ég er
alltaf með skeiðar í vasanum og fer oftar en ekki uppá svið að
spila og hann horfir aðdáunar augum á mig sem snilling. Svo eftir
hvert fyllirí hringir hann og segir” Koppur þú verður að heyra hlustaðu á
Gígga “ svo heyri ég hann misþyrma einhverjum skeiðum og öskrar í
takt að hann heldur “Koppur,Gíggi,Koppur,Gíggi” svo endar þetta
vanalega á því að hann segir “Ahh sorry my bad ég er kannski ekki
mótiveraður akkúrat núna en hvernig var ég “
Gummi minn þú ert bara B maður í
mínum augum getur ekki einu sinni skitið almennilega á þig !!!!
»
22.12.2005 22:49:01 / issi
Ég var að velta fyrir mér hvað sé hægt að gera nú þegar Hard Rock
er farið. þarna hafa grindvíkingar safnast saman í aldir alda á
þorláksmessu og sagt gamansögur og uppáferðissögur og drukkið
hóflega til að klúðra ekki síðustu gjafakaupunum. í gegnum aldirnar
hefur nú ýmisslegt gerst hjá okkur ég hef t.d. gleymt gjöfum og
þurft að koma daginn eftir með skeifu og skömm. það hefur horfið
hreinlega frá mér poki með gjöf. En þetta hefur nú reddast alltaf
hjá mér. Í ár finn ég ekki svo mikið fyrir jólunum, ég hef verið að
vinna mikið,þarf ekki að skreyta,ekki að senda jólakort og svona
gæti ég lengi haldið áfram. Það er til fólk sem er allan desember
að undirbúa jólin og stressið og ruglið sem fylgir þessum blessuðum
jólum er að yfirbuga suma hver ein og einustu jól . Það er einsog
því finnist að það þurfi alltaf að vera betra eða meira en
nágranninn. Og fela sig svo á bak við börnin(þetta er nú fyrir
litlaPólfarann) segir Jói ábyggilega. en í alvöru hugsið um þetta.
Þessi jól hjá mér núna eru hrein snild ekkert stress engin hvöð um
eitt eða neitt hér er ég bara í seljahverfi með mitt aðventuljós og
ég er hamingjusamur, þetta eru mín jól mín mín mín.....
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla
»
23.11.2005 03:39:14 / issi
hæhæ öll sömul er að læra mig í klessu og hef ekkert bloggað en fer
að klára þessa vinnubók þá fáið þið að sjá hvað ég hef verið að
gera í vetur þangað til bbblessssssssss
»
01.11.2005 20:41:07 / issi
Góðan dag öllsömul, vinir og óvinir. Það er búið að vera svo gaman
í dag ég var að drolla um alla borg nennti ekki í skólann bara að
slaka á. Svo vippaði ég mér inn í hljóðfæraverslun að athuga hvort
þeir ættu almennilegar skeiðar en þar á bæ tókst þeim að selja mér
gítar. Já skeiðarfíflið er farinn að spila á ný á gítar (ég er nú
betri á skeiðum)
þannig að í stað þess að vera að læra er ég að syngja óð til míns
sjálfs. ég á ekki von á því að Hjalli sonur Grétu eða Hjalli á
salti komi á fyrstu tónleikana mína sem verða eftirsirka 2-3 vikur
á Rökkurbarnum. Þannig að ég má ekkert vera að þessu verð að fara
að æfa mig
»
01.11.2005 00:32:48 / issi
Hjálp
mig vantar heimilshjálp við að taka til og svona dittum og
dattum það er ekki allt í drasli bara ég er að drepast úr
leti . Ég borga vel !! einu sinni í viku please einhver
»
20.10.2005 23:48:01 / issi
Jæja heil og sæl öllsömul. Lífið er nú að smella í
eðlilegan farveg hjá mér, maginn kominn í gott lag og er að
verða skárri í bakinu. En það er magnað hvernig sagnagleðin hjá
mér er fljót að berast um internetið. T. D. Það er talað um
bloggið mitt síðasta á barnalandi undir umræða
http://barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=2827098&advtype=52&page=1
Þarna eru einmanna húsmæður eða aðrir iðjuleysingja að tala og
gagnrýna um ekki neitt það er talað um allt, þær leita ráða með
allt, og hver veit hvernig menneskja er að gefa góð ráð eða ekki.
T.d. ég held að maðurinn minn sé að halda fram hjá mér, hvernig á
ég að sjóða vatn ?, hvað er klukkan?, hvað kostar herpesmeðal?, er
snípurinn ykkar grænn hvað á ég að gera?
Svona er þetta í alvöru ! svo er ég að tala um ótrúlega
óheppni hjá mínum manni og er dæmdur á barnalandi sem ógeð!!!! Nei
nei og aftur nei þetta var ótrúleg röð tilviljana og veikinda sem
þarna áttu í hlut og ekkert annað
Ps. Það kemur engin þarna fram nema undir dulnefni
Kærar þakkir!!
issi skrýtni og stórskemmdi einsog einhver
segir svo skemmtilega þarna J
»
18.10.2005 16:57:24 / issi
Hæ hæ það er nú ekki allt með
felldu hjá Koppnum þessa dagana. Ég hef verið að drepast í
löppinni sem er afleiðing frá bakinu og hef því verið að
skakklappast í vinnunni. En svo tókst mér að veikjast á
laugardag með svima og ógleði + löppin. Svo fer ég heim eftir
vinnu og tek tvær parkódín forte og leggst upp í rúm. Svo
bara svitna ég og svitna alveg í klessu og mæti í vinnu á
sunnudag bara hin hressasti. Svo eftir vinnu á sunnudag er
mér boðið í heimsókn og gisting innifalinn (durududu.....).
svo liggjum við uppi í rúmi og hún er að tala við mig strýkur
svona nett yfir bumbuna á mér og í því koma einhver óhljóð og
urrgur einsog eitthvað sé að drepast og ég segi: Heyrðir þú
þetta !
Hún hló og í því SKEIT ÉG Á
MIG.....í rúmið .......ég var nakinn í saur...hljóp inná
klósett með handklæði sem lá þarna hjá henni sem ég hef enga
skýringu á, sat svo einsog hryðjuverkamaður með allt á hornum
mér og stórskemmdi klósettið.
Um nóttina svaf ég ekki mikið vegna
skammarinnar að hafa drullað í annara kvenna rúm. Í dag hugsa
ég um einn dag í einu og reyni að lifa þannig það sem eftir
er . skömmin er að sliga mig.
Sigurbjörn
Klængur ég er farinn að skilja þig mun
betur og biðst hér með formlega afsökunar á því að hafa gert
óspart grín af þér þegar þú misstir þig á áttundu holu hér um
árið .....
»
12.10.2005 22:51:45 / issi
Jæja þá er ég loksins kominn á
skrið í skólanum. Ég var ekkert búinn að gera neitt, verkefnin
voru að hlaðast upp, og Koppurinn boraði bara í nefið. En núna
er ég loksins búinn að ná þessu upp, og þetta var nú ekki mjög
erfitt bara letin, var að drepa mig. Annars er ég búinn að koma
mér vel fyrir, og er tilbúinn að taka á móti gestum sem koma með
pakka, eða drykkjarföng opnum örmum. Svo var ég að vafra svona
þennan daglega rúnt og ekki nóg með það að Gummi iðjuleysingi sé
búinn að taka mig úr kraftblogginu, heldur er Baddi Lofts þessi
sem var alltaf að runka sér með Gunna Má, svo sár út í mín skrif
um hann Gunna að hann tók linkinn á mig í burtu!!!!!
Þetta er svakalegt !!!! ég verð að
fara hugsa minn gang, þetta gengur ekki lengur. Það er kannski best
að ég fara að heimsækja Gulla Sævars og fá syndaupplausn hjá honum,
þar sem hann hefur tekið mormónatrú af fullum krafti. Og fari að
biðjast fyrirgefningar til þessara
manna...........................
Nei ég held ekki
Heyrumst!!!!!!!!
»
Síður:
1 2 3 ...
6